Myndir frá umbakvöldinu
njótið
http://s184.photobucket.com/albums/x300/aron1983/?start=0
Engin athugasemd
Vísindamenn hafa fundið furðulegt nýtt spendýr af nagdýraætt í Norðurárdal. Skepnan hefur hlotið latneska heitið Rhynodavorus Puruciswensis og er lýst sem blöndu af lítilli antilópu og smávaxinni mauraætu.Það voru félagar í Vísindaakademíu Bifrastar sem fundu dýrið og segir einn þeirra, dr. Barðdal , að þetta sé ein mest spennandi uppgvötvun á ferli sínum.Myndir náðust af dýrinu árið 2006 en þá var ekki vitað að um áður óþekkta dýrategund væri að ræða. Það var svo fyrir tveimur árum að leiðangur var gerður út til svæðisins og nokkur af dýrunum fönguð. Rannsóknir hafa síðan staðfest að um áður óþekkt dýrategund er að ræða.
Dýrið var voða gæft þegar að myndatökumann bar að garði
Aron
Þakkirnar fær hann fyrir moka snjóinn fyrir framan dyrnar.
Davor P-eitthvað vill fá rökstuðning frá verkefnastjóra skattaréttarhópsins. Málavextir eru þeir að Arna, Elva og Aron (hópstjóri) voru kominn saman í hóp og vantaði einn í hópinn. Magnús og Davor sóttu um plássið. Davor var metinn hæfastur en Magnús fékk plássið. Davor var mjög ósáttur við niðurstöðuna þar sem hann taldi sig vera hæfari en Magnús, t.d. væri hann deildarfulltrúi lagadeildar, 2 barna faðir. fyrrverandi liðþjálfi og ósigrandi í olsen olsen.
Í fréttatilkynningu sem að Aron sendi út segir m.a. Ég hef haft góða reynslu af Magnúsi í hópastarfi, ég tel að reynsla hans sem varaaðstoðarminkabóndi muni reynast okkur mjög vel. Síðan hefur hann stundað nám við Háskólann í Lundi í Svíþjóð en sú reynsla er ómetanleg. Þar að auki er hann mjög flinkur í teikningu. Davor var ekki sáttur við rökstuðninginn og hyggist fara með málið lengra á næsta deildarfundi.

Magnús var að vonum vonsvikinn eftir burstið. Hann hefur nú lagt körfuboltann á hilluna og hyggir á frekari frama í öðrum íþróttum.
Stelpan vildi ekki láta hafa neitt eftir sér.

BIG IN JAPAN.
Jæja annars hef ég ekki bloggað í langan tíma, ástæðan fyrir því er ekki hugmyndarleysi heldur er það álag í skólanum en þessi önn er sú erfiðasta hingað til.
Býst annars ekki við að blogga meira þetta árið, hugsanlega næsta, það fer bara eftir því hversu mikið það verður að gera hjá manni.
Og að lokum eru það Tvífarar vikunnar
Merki Samkeppniseftirlitsins
Táknið út Heroes þáttunum
Er samkeppniseftirltið að reyna að vera cool með því að vera með næstum eins tákn? Er það kanski að reyna að ná betur til yngri borgara með þessu? Eru kanski einhverjar hetjur (heroes) í Samkeppniseftirlitinu sem eru að starfa í þágu hins góða? eða vonda?
Tilviljun eða samsæri????
Cool eða ekki Cool????
Tilraun samkeppniseftirlitsins eða ekki?
Fugl eða fiskur?
mbk.
Aron
ps. þessi myndasaga var ekki styrkt af Acer